**** EIGNIN ER SELD ****Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu: Bollagata 14, 105 Reykjavík. Lítið niðurgrafin kjallaraíbúð í þríbýlishúsi.Góð 57,4 fm. 2ja herb. lítið niðurgrafin kjallaraíbúð með sérinngangi á þægilegum stað. Ekið er inn í götuna frá Rauðarárstíg og er húsið annað hús frá horni. Eignin er í næsta nágrenni við Miklatún og í göngufæri við Landspítalann og miðborgina.
Húsið er ný sprunguviðgert og steinað. Þak og rennur yfirfarið. Gluggar og gler virðast í góðu lagi. Gluggar eru stórir.
Nánari lýsing:Komið er inn í físalagða forstofu og þaðan inn í parketlagt hol með rúmgóðum skápum.
Eldhús er með flísum á gólfi og flísum á hluta veggja. Innrétting er mjög snyrtileg með Electrolux tækjum, veggofni, spanhelluborði og viftu undir innréttingu
Herbergi er rúmgott með fallegum stórum fataskápum. Parket á gólfi.
Stofa er stór og björt með parketi á gólfi.
Baðherbergi er allt flísalagt, veggir og gólf. Innrétting, upphengt WC, baðkar m/sturtubúnaði. Gluggar eru á baðherberginu.
Úr forstofu er gengið inn í sameign þar sem er 5 fm. sérgeymsla
Sameiginlegt þvottahús þar sem hver er með sína þvottavél/þurrkara
Stór og vel hirtur sameiginlegur garður.
Fáið frekari upplýsingar hjá Hákoni Guðmundssyni aðstm. fasteignasala í síma 861-9240 eða á netfanginu [email protected] og hjá Kristjáni Baldurssyni hdl. og löggiltum fasteignasala í síma 867-3040 eða á netfanginu [email protected]