“SELD“
Fallegt 3ja hæða einbýli við Hjallaveg í Reykjavík.
Aðalhæðin er 86,7 fm jarðhæðin er skráð 71,7 fm en er um15 fm stærri og risið er 59,7 fm.
Húsið er því skráð 218,1 fm að stærð en er í raun 233,1 fm.
Nánari Lýsing:
1. HæðForstofa: gengið er inn í forstofu með fatahengi. Parket á gólfi.
Stofa: er tvískipt svo um er að ræða annarsvegar stofu og hinsvegar borðstofu. Hægt er að loka á milli. Parket á gólfi. Útgangur út á góðar svalir.
Eldhús: eldri innrétting og eldavél. dúkur á gólfi.
Baðherbergi: eldri innréttingar. salerni, vaskur og baðkar með sturtu. Flísar á gólfi.
Tvö svefnherbergi: parketlögð, skápar í öðru og efri skápar og möguleiki á skápum í hinu.
KjallariKjallari er aðeins niðurgrafinn.
Lítil geymsla undir stiga.
Stofa: stór og með parket á gólfi.
Svefnherbergi: stórt herbergi, upphaflega byggt sem bílskúr. Rúmgott.
Svefnherbergi rúmgott, partket á báðum.
Þvottahús: Lakkað gólf, farið að flagna á köflum. Rúmgott.
Eldhús: Lítið með eldri innréttingu.
Baðherbergi: Lítið með klósetti og vaski.
Parket á öllum gólfum í kjallara.
Ris:Komið er inní parketlagt hol.
Stofa er parketlögð og er útgengt út á góðar suðursvalir.
Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og eru þau parketlögð, skápar eru í öðru.
Gólf á baðherbergi er flísalagt. Þar er að finna upprunalega innréttingu, baðkar og glugga.
Einnig er þar tengi fyrir þvottavél.
Eldhús er með upprunalegum innéttingum. Þar er parket á gólfi.
Að sögn eiganda er risið byggð úr timbri árið 1972
Hús í góðu ástandi að utan með fallegum og vel skipulögðum garði.