EIGNIN ER SELD OG ER Í FJÁRMÖGNUNARFERLI -
Glæsilegt parhús með bílskúr við Grundarhvarf í Kópavogi. Eignin stendur rétt við Elliðavatn. Eignin er skráð 171,1 fm þar af bílskúr 34,4 fm. Nánari lýsing:Komið inn í flísalagða forstofu með rúmgóðum fataskáp, gestasalerni er í forstofu. Stofan er björt og falleg með aukinni lofthæð. Eldhús er með snyrtilegri viðarinnréttingu og uppþvottavél sem getur fylgt eigninni.
Í eigninni eru fjögur svefnherbergi, þrjú þeirra með skápum. Eitt herbergjanna er í risi með lægri lofthæð og er tilvalið sem barna eða unglingaherbergi. Inn af því er geymsla.
Þakgluggi er á risi.
Baðherbergi er nýuppgert og er með fallegri innrréttingu, góðum sturtuklefa, flísar í hólf og gólf.
Innangengt er í bílskúr í gegnum þvottahús en þvottahús er með nýrri innréttingu.
Ris er ekki inn í skráðum fermetrafjölda eignar.Garðurinn er stór og er ca. 50 fm pallur í garði. Á palli er heitur pottur, útgengt er út á pall bæði úr stofu og bílskúr.
Hiti er í plani fyrir framan hús.
Bílskúrinn er rúmgóður og með hátt til lofts.
Gólfefni eru parket á stofu og herbergjum. Flísar í forstofu, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi.
Skemmtileg og vönduð eign. Mikil nálægð við fallega náttúru Elliðavatns og nágrennis. Fáið frekari upplýsingar hjá Kristjáni Baldurssyni hdl. og löggiltum fasteignasala í síma 867-3040 eða á netfanginu [email protected]