Mjög glæsileg efri sérhæð og ris ásamt bílskúr á einstökum útsýnisstað alls 187,2 fm. í steinsteyptu tvíbýlishúsi við Jaðarsbraut á Akranesi. Aðalhæðin er 103 fm. og ris 44,2 fm. en nýtanlegur gólfflötur þar er mun stærri.
Lýsing eignar: Sér inngangur um steyptar útitröppur. Flísalögð forstofa og fatahengi. Miðrými, eldhús með borðkrók og vandaðri eikar innréttingu sem er án tækja. Tvær samliggjandi stofur og þar útgengi á suður svalir. Rúmgott herbergi og fataherbergi með miklu skáparými. Baðherbergi er með glugga, góðri innréttingu, handklæðaofni og baðkari með sturtu. Í risi er sjónvarpsstofa og þrjú herbergi með stórum kvistgluggum.
Gólfefni eru flísar og parket.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús.
Bílskúr 40 fm. er inn á lóð hægra megin við húsið.
Falleg frágengin lóð.
Glæsilegt útsýni eftir ströndinni og út á flóann og yfir til Reykjavíkur.
Ástand heimilstækja er óvitað, ÍLS mælir með fagmanni að skoða húsið.