*** EIGNIN ER SELD ***
Árblik, Austurvegi 38b, Seyðisfirði. Húsið er byggt 1925, en var gert upp á árunum 2000 - 2006, þá var dregið í rafmagn, skipt um þak og lagnir endurnýjaðar.
Stór garður fyrir ofan og innan hús. Á efri hæð er stór stofa og þaðan innan gengt í eldhús, gangur, vinnuherbergi og forstofa sem liggur út á sólpall. Á neðri hæð er stórt hol með útihurð, tvö herbergi, bað og þurrkunarklefi. Einnig er lokuð geymsla með rafmagni sem gengið er inn í frá garði.
Bílskúr er fylgir eigninni þarfnast viðhalds.
Húsið er í góðu ástandi og hefur allnokkuð sögulegt gildi þar sem þar var rekið bókband og prentsmiðja áratugum saman.