*** EIGNIN ER SELD***
Rúmgóð og björt 4 herbergja jarðhæð í tvíbýlishúsi með sérinngangi við Hamrahlíð. Eignin er mjög vel staðsett miðsvæðis með Kringluna, skóla og alla þjónustu á næsta leiti. Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands íbúð á hæð 101 m2.
Eignin skiptist í 3 svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, þvottahús, geymslu og borðstofu. Nánar um eignina:Forstofa með flísum á gólfi og skáp.
Rúmgott hol með parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu, góður eldhúskrókur og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.
Tvö svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt og með baðkari.
Þvottahús er innan íbúðar með glugga.
Aðrar upplýsingar varðandi eignina :Parket endurnýjað að hluta 2013
Sprunguviðgert og málað 2008
Skólp myndað og hreinsað, settur brunnur 2003
Rafmagnið var tekið í gegn 2001/2002
Ofnalagnir endurnýjaðar 2012
Eign á eftirsóttum stað í Hlíðunum.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 867 3040 eða á netfanginu [email protected] eða Gunnar Þórisson viðskiptafræðingur og aðstoðamaður fasteignasala í síma 692 6226 eða á netfanginu [email protected]
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.