Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Skipasund 88, 104 Reykjavík (Vogar)
35.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
76 m2
35.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1938
Brunabótamat
24.700.000
Fasteignamat
37.350.000

***Eignin er seld og er í fjármögnunarferli***

Trausti fasteignasala kynnir:


Rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 1. hæð í fallegu sexbýli á frábærum stað að Skipasundi 88, 104 Reykjavík. Eignin er skráð 76,3 fm., þar af 4,6 geymsla, og skiptist í forstofu/alrými, tvö rúmgóð svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi og sérgeymslu í kjallara. Góð lofthæð í allri íbúðinni.

Nánari lýsing:

Gengið er inn í rúmgott flísalagt forstofurými með fataskáp.
Á hægri hönd úr forstofu er gengið inn í baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni, innangenginni sturtu, handklæðaofni og snyrtilegri innréttingu.
Gengið inn í rúmgóða stofu með teppi á gólfi, góðum glugga og mikilli lofthæð.
Innaf stofu er gengið inn í rúmgott svefnherbergi með dúk á gólfi.
Annað rúmgott svefnherbergi með dúk á gólfi og góðum fataskápum.
Eldhús með dúk á gólfi og gamallri innréttingu.
Mjög góð lofthæð í allri íbúðinni.
Sérgeymsla í kjallara.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara.


Settir voru nýjir gluggar í alla íbúðina árið 2010.
Skipt var um dren og skólplögn árið 2012. 
Húsið var bárujárnsklætt með Aluzink klæðningu og munstrað gerefti sett í kringum glugga árið 2015.

Tilvalin eign fyrir fyrstu kaupendur en íbúðin er frábærlega staðsett þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, stofnleið Strætó og skemmtileg göngusvæði í Laugardalnum.

Nánari upplýsingar veita Garðar B. Sigurjónsson, aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 898-0255 og á [email protected] og Kristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040 og á [email protected]

 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.