Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Hlynsalir 1, 201 Kópavogur
73.900.000 Kr.
Fjölbýli / Fjölbýlishús með lyftu
3 herb.
102 m2
73.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2003
Brunabótamat
49.420.000
Fasteignamat
67.050.000

Rúmgmóð og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í góðu lyftuhúsi með verönd og bílastæði í bílakjallara á þessum eftirsótta stað í Kópavogi. Stór stofa, tvö góð svefnherbergi og sér þvottahús. Eigninni fylgir sér afgirt verönd og stæði í lokaðri bílageymslu með rafmagnshleðslustöð í hverju bílastæði. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 102,5 fm. og þar af geymsla skráð 7,2 fm. auk bílastæði í bílakjallara sem ekki er inn í fermetratölu eignarinnar. 
Fyrirhugað fasteignamat fyrir árið 2024 verður kr. 73.350.000


Nánar um eignina:
Forstofa með skáp og flísum á gólfi. 
Stofa og borðstofa mynda saman mjög rúmgott stofurými með nýlegu parketi á gólfi. Úr stofu er gengt út á stóra og sólríka hellulagða afgirta verönd.
Eldhúsið er hálf opið inn í stofuna en þar er góð innrétting, tengi fyrir uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og parket á gólfi. 
Svefnherbergi rúmgott með fataskáp og parket á gólfi.  
Baðherbergið með snyrtilegri innréttingu, er flísalagt, þar er hvít innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.  
Þvottahús er innan íbúðarinnar með vinnuborði, vask, góðu hilluplássi og flísar á gólfi.  
Geymsla í snyrtilegri sameign í kjallara hússins.
Stæði í lokaðri bílageymslu. Verið er að leggja rafmagn fyrir rafmagnshleðslustöðvar. 


Þetta er vel skipulögð eign á þessum eftirsótta stað í Salahverfinu. 

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir lgfs. í síma 899-5949 eða á netfanginu [email protected] 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.