Kristján Baldursson hdl.

löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, löggiltur leigumiðlari
Vegmúla 4, 108 Reykjavík 546-5050
Þverás seld 1, 110 Reykjavík (Árbær)
113.800.000 Kr.
Parhús / Parhús á pöllum
6 herb.
171 m2
113.800.000
Stofur
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1991
Brunabótamat
68.790.000
Fasteignamat
100.900.000

**** EIgnin er SELD með hefðbundnum fyrirvara ****

Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallegt parhús á 3 hæðum með bílskúr á vinsælum stað í Selásnum að Þverás. 2 bílastæði við húsið og hleðslustöð fyrir rafbíl. Stór, gróin og alveg lokaður garður sem snýr í suður og vestur. Heitt og kalt vatn í garði. Mjög róleg gata og er þessi hluti götunnar vistgata. Sjón er sögu ríkari.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Samkvæmt HMS er eignin skráð 171,4 fm og þar af er bílskúr 24,5 fm

Nánari lýsing:
Jarðhæð:
Forstofa
með skáp og flísar á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt með parket á gólfi.
Borðstofa við eldhús með parket á gólfi. Útgengt á hellulagða verönd.
Eldhús með snyrtilegri innréttingu, viftu yfir helluborði og tengi fyrir uppþvottavél.
Gestasalerni við forstofu með sturtu, flísar í hólf og gólf og gluggi.
Þvottahús/geymsla með skolvask og góðu vinnuborði.
Steyptur teppalagður stigi upp á 2. hæð:
Hol með parket á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataherbergi og parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með góðum skáp og parket á gólfi.
Svefnherbergi III er rúmgott með góðum skáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er rúmgott með flísar á gólfi, baðkar, handklæðaofn og glugga.
Tréstigi upp á rishæð:
Gott alrými með teppi á gólfi sem nýtist sem sjónvarpsstofa, stofa eða svefnherbergi.

Bílskúr er rúmgóður með geymsluloft (ekki skráð í fermetratölu), heitt og kalt vatn, rafmagn og ofn.

Einstaklega fjölskylduvæn eign og stutt í leik- og grunnskóla og alla helstu þjónustu. Stutt í íþróttir, hestamennsku í Víðidal og Elliðaárdalurinn í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu [email protected]
 

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.